Lög Félags sérfræðinga í klínískri sálfræði (FSKS)
(The Icelandic Association of Clinical Psychologists)
1.gr.
Félagið heitir Félag sérfræðinga í klínískri sálfræði, skammstafað FSKS. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagið er fagdeild innan Sálfræðingafélags Íslands og félagsmenn skulu vera félagar í Sálfræðingafélagi Íslands.
2.gr.
Markmið félagsins eru:
1. Að gæta hagsmuna sérfræðinga í klínískri sálfræði og kynna sérþekkingu þeirra og starfssvið.
2. Að stuðla að og fylgjast með faglegri þróun í klínískri sálfræði.
3. Að styrkja samstarf og samheldni félagsmanna.
3.gr.
Skilyrði til þátttöku í félaginu er að viðkomandi hafi leyfi embætti landlæknis til að kalla sig sérfræðing í sérgrein innan sálfræði, starfa sem slíkur hér á landi og hafi hlotið viðurkenningu Heilbrigðisráðuneytis í klínískri sálfræði eða í öðrum klínískum sérgreinum í sálfræði.
Þegar félagsmaður fer á eftirlaun fær hann heiðursaðild að FSKS. Aðalfundur FSKS getur einnig veitt öðrum sérfræðingum í klínískri sálfræði heiðursaðild.
4.gr.
Stjórn félagsins skipa 4 fulltrúar, formaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi kosnir sérstaklega til 2ja ára í senn. Annað hvert ár er kosið um 2 stjórnarmenn. Stjórnarmenn skipta með sér verkum. Hlutverk formanns er að vera fundarstjóri á fundum félagsins og standa vörð um hagsmuni þess. Ritari heldur fundargerðir og gjaldkeri sér um fjármál. Meðstjórnandi sinnir tilfallandi verkefnum stjórnar.
5.gr.
Félagið heldur stjórnarfundi og almenna félagafundi yfir vetrarmánuðina samkvæmt ákvörðun stjórnar. Aðalfundur skal haldinn að vori.
6.gr.
Verði félaginu slitið falla eignir þess til Sálfræðingafélags Íslands.
7.gr.
Lög þessi skulu endurskoðuð einu sinni á ári, á aðalfundi félagsins.
Samþykkt á aðalfundi 13. mars 2026, með áorðnum breytingum.
Lög um heilbrigðisstarfsmenn má finna hér
Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi má finna hér
Upplýsingar og umsóknareyðublað um sérfræðileyfi í sálfræði má finna hér
Siðareglur sálfræðinga má finna hér
Skrá um rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu er að finna hér (smelltu á „rekstraraðila“ í textanum á síðunni til að sækja Excel skrá)
